Ræktun & Fæða
Búfræði
Búfræðinám er góður undirbúningur fyrir alla sem koma að landbúnaði með einum eða öðrum hætti. Markmið búfræðibrautar er annars vegar að búa nemendur undir fjölbreytt störf á sviði landbúnaðar- og matvælaframleiðslu með þeim hætti að þeir uppfylli hæfnikröfur starfsins og hins vegar að búa nemendur undir frekara nám.
Kennt er á Hvanneyri.
Brautarstjóri Helgi Eyleifur Þorvaldsson
Er námið fyrir þig?
- Hefur þú áhuga á vinnu með dýrum?
- Vilt þú geta rekið bú?
- Hefuru gaman af vinnu með vélum og tækjum?
- Hvernig framleiðum við matvæli framtíðarinnnar?
- Vilt þú byggja sterkari grunn fyrir frekara nám í landbúnaðarfræðum
Um hvað snýst námið?
Inntökuskilyrði
Námskröfur
Skipulag náms í búfræði
Fjarnám
- Fjarnámið er byggt upp á svipaðan hátt og hefðbundið búfræðinám. Nemendur innritast á sama hátt í skólann og stunda námið á hálfum hraða.
- Flestir áfangar eru kenndir yfir vetrartímann en einhverjir áfangar koma inn á sumarönn (plöntusafn, námsdvöl og valfög).
- Samskipti nemenda og skóla eru í megindráttum um internetið. Því er mikilvægt að allir séu nettengdir og kunnugir samskiptum á netmiðlum.
- Verklegir hlutar búfræðinámsins eru kenndir á námskeiðum sem haldin í fjarnemavikum sem fara fram tvisvar fyrir áramót og tvisvar erftir áramót á ári hverju. Reynt er að stytta eins og mögulegt er fjarveru nemenda frá búum sínum en gera má ráð fyrir 3-5 dögum í hverri fjarnemaviku. Nánara skipulag þessa þáttar námsins er kynnt við upphaf hverrar annar.
Sjá nánar hér
Sameiginleg stúdents- og búfræðibraut
Raunfærnimat
Skiptinám
Félagslíf
Nemendagarðar
Tímarit búfræðinga
Kennsla fer einnig fram á búum skólans
Að loknu námi í búfræði
Nemandi útskrifast sem búfræðingur og er það góður undirbúningur undir frekara nám í búvísindum, dýralækningum og dýravísindum.
Búfræðingur starfar við sérhæfð landbúnaðarstörf, annaðhvort við eigin rekstur eða hjá öðrum og þá gjarnan sem verkstjóri eða bústjóri.
Búfræðingur sér um fóðrun, hirðingu og meðferð dýra, býr yfir þekkingu og færni í notkun og umhirðu landbúnaðartengdra véla, þekkingu á þörfum landbúnaðarins til landgæða, húsakosts og aðbúnaðar og færni til ræktunar og nýtingar plantna til fóðuröflunar og beitar.
Hann hefur þekkingu á ræktun og kynbótum búfjár. Hann er meðvitaður um lög og reglur sem tengjast landbúnaðarframleiðslu og gætir að umhverfi og öryggi. Hann nýtir auðlindir landsins á skynsamlegan hátt með sjálfbærni og afurðir að leiðarljósi.
Möguleikar á framhaldsnámi
Að loknu námi í búfræði opnast nemendum möguleikar á frekara nám á BS stigi til dæmis í búvísindum, dýralækningum eða dýravísindum.